Sannað að Eiríkur rauði gat bruggað öl á Grænlandi
Það hafa lengi verið vangaveltur um hvort loftslagið á syðsta hluta Grænalands hafi verið nægilega hlýtt á tímum víkinganna til þess að hægt væri að rækta þar korn og þar með brugga öl, eða mjöð, sem var einn helsti drykkur víkinga, elda graut og baka brauð.
Nú hafa danskir fornleifafræðingar fundið leifar af brenndu byggi í fjóshaug sem er frá þeim tíma þegar Eiríkur rauði og fleiri Íslendingar fluttu sig búferlum til Grænlands. Þetta er í fyrsta sinn sem ummerki um kornrækt finnast á syðsta hluta Grænlands fyrir um 1.000 árum síðan.
Gleðileg jól
Orrusta í bílakjallara
Enn og aftur er félagið okkar í fjölmiðlunum, nú á MonitorTV.
Víkingafélagið Rimmugýgur telur á hundrað manns og heldur upp á siði og venjur víkinga til forna. Eysteinn á MonitorTV heimsótti félagið á bardagaæfingu og kynntist heimi nútímavíkinga.
Mánudags bogaæfingin 21. nóv
Fyrsta bogaæfingin í Víðistaðaskóla var fjölmenn og góð, alls mættu 10 bogamenn/ konur og æfðu sig. Skotmörk voru fyrir alla og bogar til láns fyrir þá sem ekki áttu boga. Stjórnin hvetur alla þá sem eiga boga að mæta á næsta mánudag í Víðistaðaskóla milli kl. 19 – 21 og prufa.
Bogaæfingar í Íþróttahúsi Víðistaðaskóla
Rimmugýgur hefur tekið á leigu tíma í íþróttahúsi fyrir bogaskytturnar sínar á mánudögum kl. 19 - 21. Fyrsta æfingin verður haldin í íþróttahúsi Víðistaðaskóla mánudaginn 21.nóvember kl. 19:00 til 21:00. Þeir sem vilja taka þátt í bogaæfingum verða að greiða 250.- krónur fyrir æfinguna. Rimmugýgur vonar að sem flestir mæta, þeir sem ekki eiga boga en vilja prufa geta fengið boga og örvar lánaðar á staðnum.
Síða 1 af 5
